Brynju toppurinn er mjúkur en samt með góðum stuðning, einfaldur og stílhreinn. Böndin liggja utar á öxlunum og henta því vel þeim með vöðvabólgu í öxlum. Púðar fylgja eins og í öllum toppum en ekkert mál að taka þá úr eða þá bæta fleirum í eftir þörfum.